Brúðkaupið er liðið
og vitiði hvað... það heppnaðist bara, hver hefði
giskað
Og nú er ég orðin
FRÚ og þið eigið alltaf að segja við mig ,,sæl frú Sigrún”
þegar þið hringið í mig..!!!
Hér er mín útgáfa
af deginum... VARÚÐ MJÖG langt... afsakið hvað
þetta kemur seint
Dagurinn gekk STÓR
áfallalaust fyrir sig.
Ég vaknaði
snemma, fór í sturtu drakk mikið af kaffi og dreif mig síðan
í klippingu með Írenu. Við vorum mjög flottar þó ég segi
sjálf frá
Ég var orðin MJÖG stressuð þegar í endann dróg
því farðinn var eftir og við orðnar í
tímaþröng.
Skelltum okkur
heim í förðun. Jói vinur okkar sá um það með stæl. Ég er svo
óvön að nota málingu að það sem mér þótti allt of mikið og
vera jafnvel úr í dragkvöldförðun var mér sagt að væri mjög
milt og lítið... hmmm ég þarf greinilega að fara skoða förðun
betur 
Þá var það
myndatakan, við ákváðum vegna tímaleysis að hafa hana FYRIR
kirkjuna. Ég var hlaupandi um í meðalháu grasi í kringum
vísilstaðaspítala í kjólnum góða, fyrir kirkjuna með öndina í
hálsinum að hann myndi ekki skemmast endanlega fyrir
kirkjuna... Það heppnaðist ágætlega þó að hvítu skórnir
hennar Írenu hafi ekki beint verið hvítir lengur þegar heim
var komið, frekar nær svörtu ef eitthvað svo það þurfti að
þvífa þá og þurrka með hárblásara korteri í brúðkaup

Þá mætti á
staðinn Logi, bróðir Begga til að keyra mig og börnin í
kirkjuna. Við pabbi völsuðum inn kirkjugólfið með börnin á
undan óttalega sæt. Írena var æðisleg blómastelpa og Ísak
stoltur flottur hringaberi. Þar tók Beggi á móti okkur með
pabba sínum.
Kirkjuathöfnin
tókst bara vel. Moa söng 3 lög, cant take my eyes of you, Ást
og panis Angelikus. Presturinn var yndisleg hún heitir Hildur
Eir Bolladóttir og var svo innileg og hlý, grínaðist mikið og
fékk fólkið til að klappa á eftir lögunum og þegar Ísak
hringaberi afhenti okkur hringana.


Þá vorum við
orðin hjón. Fyrir utan vorum við kysst ca. 39933000 sinnum og
héldum síðan leið okkar á glæsilega skreytta bílnum okkar
(sem bræður mínir skreyttu, Bjartur, Ljúfur, Magnús og
Róbert). Leið okkar lá upp á Hótel Sögu þar sem við tjékkuðum
okkur inn á brúðarsvítuna á meðan gestir okkar hlustuðu á
tóna Freds undir freiðivínsdrykkju.

Þá mættum við á svæðið. Við
mættum með litlum fyrirvara svo planið raskaðist aðeins hjá
veislustjórunum okkar þeim Gummi jóh og Guffi. Aumingjast litlu
sætu gestirnir okkar höfðu þurft að bíða ansi lengi eftir okkur svo
við röltum hringinn og heilsuðum þeim og vonuðum að okkur yrði
fyrirgefið J
Þá var sest og
borðað. Og drukkið. Guffi og Gummi stóðu sig alveg SVAKALEGA
vel. Ég vil þó taka fram að ég hef ALDREI gengið á
glerhurðina í símabúðinni í Kringlunni ALDREI bara svo það sé
á hreinu og EF ég hefði gert það þá hefði það EKKI verið
FYNDIÐ huhh... 
Við Beggi ákváðum
að hafa ekki háborð í veislunni. Við vildum hafa þetta
afslappaðara og ekki eins og við værum til sýnis. Við vildum
frekar ganga um og geta sest hjá öllum gestunum og spjallað.
Okkur fannst það heppnast vel. Ég held ég hafi náð að tala
við alla og setjast nánast allstaðar.
Svo var
borðuð kaka og drukkið meira, talað saman og drukkið meira.
Síðan voru haldnar ræður og svo drukkið meira Jórunn Lilja,
frænka Begga söng fyrir okkur, hún er svakalega
góð.
og svo var
tilkynnt að brúðarvalsinn væri
næstur.
Við það gengu inn
tveir AFRÓ gaurar, svakalega flottir í afrískri múnderingu
með redda og allt, þeir hófu trumbusláttinn og tók það fólk
mislangann tíma að koma út á gólfið en ég held að flestir
hafi látið sig hafa það á endanum, eins og einn gestanna
sagði ,,hver getur staðist flottann takt, hann geta allir
dansað við,,. Þetta var mjög flott þá ég segi sjálf frá
ég
var allavega rosalega ánægð. Ég segi samt ekki að við höfum
verið flottustu dansararnir á gólfinu við Beggi þegar við
vorum tekin fyrir framan alla gestina... EKKI ORÐ UM ÞAÐ
MEIR

Ég á ,,litla,,
krúttlega vinkonu sem heitir Halla
hún söng fyrir okkur og
spilaði á flautu með undirspili vinar sem spilaði á gítar,
TAKK fyrir okkur Halla mín þetta var
æðislegt.

Að veislu lokinni fórum við
Beggi svo upp á Hótel Sögu. Ég ætla ekki að segja ykkur nánar frá
því nema það að í verði brúðarsvítunnar á Hótel Sögu er innifalinn
morgunmatur í rúmið og frítt í Spa. Það vill svo einkennilega til
að flestir gifta sig á laugardögun en SPA-ið er lokað á sunnudögun
hmm.. eitthvað sem passar ekki alveg og svo þetta með morgunmatinn,
já ehhh við gleymdumst og eftir að hafa hringt tvisvar og minnt á
okkur var okkar bara boðið að koma niður
´hlaðborðið, LÉLEGT.... ! mæli því ekki með hótel Sögu sem
brúðarsvítu L
Að öðru leiti var dagurinn
yndislegur J
Mig langar að
þakka öllum sem hjálpuðu til að gera daginn
eftirminnilegan
Takk
fyrir mig
